Horsepal – Hjartsláttarmælir og þjálfunarbelti

59.900 kr. með vsk

Viltu byggja þjálfun hestsins á raunverulegum gögnum í stað ágiskana?

Horsepal þjálfunarsettið inniheldur allt sem þú þarft til að fylgjast með hjartslætti hestsins á meðan þjálfun stendur. Settið sameinar Horsepal hjartsláttarmæli og Horsepal þjálfunarbelti sem vinna saman með Horsepal appinu og veita nákvæmar upplýsingar um álag, þol og endurheimt.

Settið inniheldur

✔ Horsepal hjartsláttarmæli
✔ Horsepal þjálfunarbelti með innbyggðum skynjurum

Þjálfaðu út frá mælingum – ekki tilfinningu

Hjartsláttur er ein áreiðanlegasta leiðin til að meta hvernig hesturinn bregst við álagi. Með reglulegum mælingum færðu betri innsýn í hvernig hesturinn bregst við þjálfun og getur tekið upplýstar ákvarðanir um hvenær rétt er að auka álag, draga úr því eða gefa hestinum meiri tíma til endurheimtar. Allar mælingar vistast sjálfkrafa í Horsepal appinu þar sem þú getur:

  • fylgst með hjartslætti og álagi hestsins í rauntíma,
  • metið þol og úthald,
  • fylgst með endurheimt eftir æfingar,
  • séð framfarir yfir tíma,
  • dregið úr hættu á ofþjálfun og álagsmeiðslum.
  • borið saman eldri æfingar,
  • vistað upplýsingar um marga hesta,
  • deilt gögnum með þjálfara eða dýralækni.

Þetta gerir þér kleift að byggja þjálfunina á raunverulegum gögnum í stað ágiskana.
Horsepal þróar snjallar lausnir fyrir hestafólk sem vill taka upplýstar ákvarðanir um heilsu, þjálfun og velferð hestsins.

Sæktu Horsepal appið

Til að nota Horsepal vörurnar þarftu að hlaða niður fría Horsepal 2.0 appinu, sem er fáanlegt fyrir bæði iPhone og Android.

Android: https://play.google.com/store/apps/details?id=com.horseware.horsepalTraining

iPhone (App Store): https://apps.apple.com/app/horsepal-2-0/id1498307182

Þér gæti einnig líkað við…