
Hestakerra til leigu
12.000 kr.
Brokk.is kynnir með stolti Brokk-kerruna. Brokk kerran er glæný, var tekin í notkun í maí 2023 og er fyrir þrjá hesta. Þyngd kerru er 800 kg og leyfð heildarþyngd 2.000 kg.
Leigan fer fram rafrænt hér fyrir neðan. Þú velur dagsetningu og tíma og greiðir í gegnum netverslun. Þú sækir svo hestakerruna í Heimsenda 14 í Spretti þar sem hún bíður eftir þér. Brokk-kerran er vel merkt og getur ekki farið framhjá þér ☺ Staðsetning hestakerrunnar er HÉR.
Öryggismál eru okkur ofarlega í huga hjá Brokk og hestakerran er þar engin undantekning. Eftir hverja útleigu er farið yfir kerruna og athugað hvort allt virki eins og á að gera. Einnig mun kerran fara reglulega í skoðun og því mátt þú vera viss um að hestakerran sé örugg fyrir bæði hesta og menn.
VERÐ
Hálfur dagur, 8:00-16:00 – 12.000 kr
Hálfur dagur, 16:00-00:00 – 12.000 kr
Heill dagur, 8:00-00:00 – 15.000 kr
Ef þú lendir í einhverjum vandræðum, heyrðu í okkur í síma 8611168 eða 7801881.
Við leigu á kerrunni samþykkir þú skilmála Brokk kerrunnar. Skilmálana má finna HÉR
Vinsamlega lestu vel yfir leiðbeiningarnar áður en lagt er af stað með kerruna
Þegar kerran er tekin er mikilvægt að… | Við skil á kerrunni er mikilvægt að… |
---|---|
1. Kerran sé örugglega fest á dráttarkúlun. | 1. Aftengja rafmagnstengil og öryggislínu þegar kerran er losuð af bílnum. |
Vinsamlega látið Brokk.is vita í síma 8611168/7801881 eitthvað hefur farið aflaga