Suedwind reiðstígvél brún
39.900 kr. með vsk
Reiðstígvél frá Suedwind sem sameinar fallegt útlit, þægindi og áreiðanleika í einum pakka. Suedwind er hannað fyrir knapa sem vilja geta treyst á búnaðinn sinn allt árið, hvort sem það er í rigningu, kulda eða daglegri notkun í hesthúsinu.
Stígvélin er úr vönduðu, vaxbornu leðri sem hrindir frá sér vatni og heldur fótunum þurrum og hlýjum. Reimarnar að framan tryggir betri aðlögun að fætinum, á meðan rennilás með teygju að aftan gerir það auðvelt að fara í og úr. Reiðstígvélin eru með þriggja laga sóla og veitir góða dempun og stuðning sem gerir skóinn þægilegan í daglegri notkun – bæði í reið og í hesthúsinu.
Af hverju þú munt elska þau:
- Vatnsheld og áreiðanleg – heldur fótunum þurrum í íslenskum aðstæðum
- Vaxborið leður – endingargott og fallegt
- Mjúk og andar vel – Micro-DRY fóður dregur í sig raka og eykur þægindi
- Passar fyrir mismunandi kálfa – reimar og teygjanlegur rennilás tryggja góða aðlögun
- YKK® rennilás – traust og endingargóð gæði
- ORTHOLITE® innlegg – aukin þægindi og dempun fyrir langa daga
- Þriggja laga sóli – höggdeyfandi gúmmísóli fyrir betra grip og stuðning
Suedwind reiðstígvélin henta jafnt fyrir daglega reiðmennsku sem og snyrtilegt útlit á mótum – fullkomin blanda af praktík og stíl.
Suedwind er þýskt gæðamerki sem er þekkt fyrir reiðskó og stígvél sem sameina fallegt útlit, framúrskarandi þægindi og frábæra endingu fyrir kröfuharða knapa.
























