Gashylki

6.900 kr.

Hægt er að velja á milli fjögurra stærða af gashylkjum og fer það eftir stærð vestis. Til að kaupa hylki sem passar in í þitt vesti, farðu eftir stærðatöflunni. Gashylkin eru með 10 ára ábyrgð og renna aldrei út.

Ef knapi dettur af baki þá þarf að bíða í tvær mínútur þar til loftið lekur úr vestinu. Það eina sem þarf að gera er að skrúfa nýtt gashylki og vestið gefur sama öryggi og áður. Sjá leiðbeiningar hér fyrir neðan.

Hverju seldu vesti fylgir eitt gashylki. Við mælum með að eiga eitt auka gashylki svo hægt sé að skipta um hylki ef knapi dettur af baki. Eingöngu má nota vottuð gashylki frá HELITE.

Við sendum frítt um allt land. Það er einnig velkomið að sækja hylki til okkar. Við erum í Spretti, Heimsenda 14. Hafðu samband og við mælum okkur mót.

ÖRYGGISVOTTANIR OG ÁBYRGÐ

CE VOTTUN: Helite öryggisvestin uppfylla ströngustu öryggiskröfur og eru með CE vottun frá ALIENOR rannsóknarstofunni sem er óháð stofnun á vegum Evrópusambandsins og sérhæfir sig í að rannsaka öryggisbúnað fyrir hestamenn (PPE).

ÁBYRGÐ: Öryggisvestunum fylgir lágmarks tveggja ára ábyrgð.Ef þú skráir vestið innan þriggja mánaða frá kaupum þá eykst ábyrgðin um tvö ár og verður að fjögurra ára ábyrgð. Til að skrá vestið í fjögurra ára ábyrgð smelltu HÉR

SKIPT UM GASHYLKI

Það er einfalt að skipta um gashylki í vestinu en mikilvægt að það sé gert rétt! Það er því mikilvægt að horfa á þetta myndband þegar það er gert í fyrsta skiptið.

Myndbandið útskýrir allt sem gott er að hafa í huga þegar hnakkólin er fest.

STÆRÐARTÖFLUR

Þér gæti einnig líkað við…