Infrarauðar legghlífar, 2 stk

89.000 kr.

Sérhannað fyrir íslenska hestinn!

Hesturinn Wrap legghlífarnar frá IC LIGHT eru sérstaklega hannaðar til að mæta þörfum íslenska hestsins við rauðljósameðferð. Sniðið og stillanlegar ólar tryggja að legghlífarnar passa íslenska hestinum á þægilegan og öruggan hátt. Legghlífarnar eru hannaðar af dýralæknum og vísindamönnum sérhæfðum í rauðljósatækni. Legghlífarnar eru framleiddar í Danmörku, eru með tveggja ára ábyrgð og eru CE, RoHS og FCC vottaðar.

Hesturinn legghlífarnar nýtast öllu hestafólki við þjálfun eða meðhöndlun fótavandamála, hvort sem er atvinnumanninum eða hinum almenna reiðmanni. Rauðljósameðferð, fyrir og eftir æfingar hámarkar þjálfun og vellíðan hestsins og minnkar hættu á meiðslum. Mælt er með því að nota legghlífarnar til að fyrirbyggja vandamál, sérstaklega fyrir keppnishross sem eru undir miklu álagi.

Hesturinn legghlífar notast við nýjustu framfarir í rauðljósameðferðum með ljósi sem smýgur djúpt inn í vefi hestsins. Legghlífarnar auka blóðflæði og minnka bólgur, fyrirbyggja álagsmeiðsli, flýta bataferli eftir aðgerð, stuðla að endurnýjun frumna, draga úr verkjum, hjálpa við meðhöndlun sára og hafa góð áhrif á sinar, vöðva, liðbönd, húð og bein.

Þjálfun

Hesturinn legghlífar geta nýst öllu hestafólki við þjálfun, hvort sem er atvinnumanninum eða hinum almenna reiðmanni. Rauðljósameðferð, fyrir og eftir æfingar hámarkar þjálfun og vellíðan hestsins og minnka hættu á meiðslum.

Fyrir æfingu – forvarnir gegn meiðslum:
Upphitun og undirbúningur: Notaðu Hesturinn legghlífar sem hluta af upphitunarrútínu þinni til að auka blóðrásina í vöðvum og sinum hestsins. Með því að nota legghlífarnar fyrir æfingar minnkar hættan á meiðslum og hesturinn er reiðubúinn til meiri afkasta.
Fyrir æfingu skal nota stillingu 6 í 10 mínútur. Það hitar vöðva og dregur úr hættu á meiðslum

Eftir æfingu:
Kæling og endurheimt: Eftir æfingu má að nota Hesturinn legghlífarnar til að styðja við niðurkælingu. Það stuðlar að endurheimt vöðva og sina og hesturinn jafnar sig hraðar. Rauðljósameðferðin dregur úr vöðvaþreytu og stuðlar að endurheimt eftir erfiðar æfingar.
Eftir æfingu skal nota stillingu 2 í 20 mínútur. Það styður við kælingu og flýtir fyrir bata.

Rautt og nær-innrautt ljós: Þessar tilteknu bylgjulengdir ljóss smjúga djúpt inn í vefjalög og kveikja í myndun nýrra háræða.

Nituroxíðlosun: Ljósameðferðin kveikir á losun nituroxíðs úr æðum og rauðum blóðkornum, sem bæðir enn frekar blóðrásina og eykur blóðflæðið. Þetta flýtir fyrir lækningarferli mjúkvefsskaða, sára og bólgum.

Meðferðir

FJÖLHÆF OG ALHLIÐA MEÐFERÐHesturinn legghlífarnar má stilla á mismunandi vegu til að glíma við margskonar vandamál sem geta hrjáð íslenska hestinn. Hvort sem vandamálin tengjast vöðvum, sinum, liðböndum eða beinum; vegna meiðsla eða af völdum liðagigtar, meðhöndlunar á sárum, þá er þessi vara frábær lausn til að flýta fyrir bata og draga úr verkjum.

Sex mismunandi meðferðir eru í boði eftir því hvað á að meðhöndla.
Meðferð nr. 1: Flýtir fyrir gróanda sára sem eru 0-7 daga gömul
Meðferð nr. 2: Minnkar bólgur og liðverki. Gott eftir æfingu til að fyrirbyggja meiðsli.
Meðferð 3: Endurhæfing
Meðferð 4: Krónísk vandamál, sveppasýkingar og aukin vellíðan
Meðferð 5: Aukið blóðflæði, stífir vöðvar og sinar
Meðferð 6: Vellíðan og verkjastillandi. Gott fyrir æfingu til að fyrirbyggja meiðsli

Hvað er rauðljósameðferð?

Rauðljósameðferð samanstendur af tveimur bylgjulengdum af ljósi. Annars vegar á bylgjulengdinni 660 nm (rauðljósmeðferð) og hins vegar 850 nm (infrarauðljósameðferð). Hægt er að stilla á aðra bylgjulengdina eða báðar í einu í. Ljósin eru skaðlaus en kostirnir eru margir. 660 nm ljósið er sýnilegt ljós og virkar vel á húð og húðvandamál, flýtir fyrir því að húðin jafni sig og grói. 850 nm ljósið, sem er vart sýnilegt ljós, fer hins vegar inn í vefina, hitar þá, mýkir, eykur blóðflæði og minnkar bólgur. Það hefur fjölmörg jákvæð áhrif, meðal annars á bólgur og verki.

Rauðljósameðferð er mikið notuð við lið- og vöðvaverkjum, meðferð sem getur hjálpað húð, vöðvavef og öðrum líkamspörtum að læknast. Rauðljósa tækið sendir lítið magn af rauðu og/eða nær innrauðu ljósi inn í svæðið sem verið er að vinna á. Innrautt ljós er tegund af orku sem augun sjá ekki en líkaminn finnur fyrir sem hita.

Tækið býr yfir bæði rauðljósum og innrauðum ljósum sem vinna saman við að létta á verkjum, draga úr bólgum ásamt því að auka blóðflæði. Rauðljósa- og innfrarauð ljósa meðferð hefur mikinn heilsufarslegan ávinning í för með sér en þessi samsetning á ljósum vinna dýpra og hraðar á meðferðarsvæðum.

Dregur úr verkjum í fótum
Eykur blóðflæði
Til að fyrirbyggja álagameiðsli
Flýtir fyrir bataferli eftir aðgerð
Meðhöndlar vöðva, sinar, liðbönd, húð og bein.
Stuðlar að endurnýjun frumna
Hjálpar við meðhöndlun sára

Handbók

Tæknilegar upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar:
6 mismunandi stillingar eftir því hvað á að meðhöndla.
660 nm Rautt ljós
810 nm Nær innrautt ljós
850 nm Nær innrautt ljós
280 ledljós (medical-grade)
50-155 mW/cm2
50.000 klst líftími ledljósa
Tveggja ára ábyrgð frá kaupdegi
CE, RoHS, FCC vottað

Inniheldur:
Tvær Hesturinn legghlífar
Tvær hleðslusnúrur
Tvo hleðslubankar með snúrum
Taska
Leiðbeiningar

Varanlegt og endingargott: Hesturinn legghlífarnar eru framleiddar úr hágæða efni og eru sérhannaðar til notkunar á ísenskum hestum. Efnið hrindir frá sér vatni og skít og hentar því fyrir margs konar aðstæður. Með réttri notkun mun þessi vara þjóna þörfum hestsins við rauðljósameðferð í mörg ár.

Þér gæti einnig líkað við…