Equineor 500 ml – Næringarsprey fyrir hesta
6.900 kr. með vsk
Equineor (500 ml) er hágæða glansspreyi fyrir hesta sem nærir feld, fax og tagl á náttúrulegan hátt. Formúlan er 100% náttúruleg og inniheldur næringarríkar olíur og silkiprótein sem gefa feldinum fallegan glans, draga úr flækjum og halda hárinu mjúku og heilbrigðu. Equineor er þróað af sama framleiðanda og vinsæla Zenroll. Líkt og Zenroll byggir Equineor á 100% náttúrulegum innihaldsefnum og þeirri hugmyndafræði að nýta kraft náttúrunnar til að bæta líðan og umhirðu hesta.
Ólíkt mörgum öðrum glansspreyjum inniheldur Equineor engin sílikon, þannig að feldurinn verður ekki sleipur eða fitukenndur. Því er óhætt að nota spreyið undir hnakknum án þess að það hafi áhrif á grip eða öryggi.
Af hverju að velja Equineor?
✨ Sílikonlaus formúla – verður ekki sleipt undir hnakknum
✨ 100% náttúruleg innihaldsefni
✨ Náttúrulegur glans eftir fyrstu notkun
✨ Djúpnærir feld, fax og tagl
✨ Arganolía, kókosolía og möndluolía næra hárin á dýptina
✨ Silkiprótein styrkja hárin og draga úr slitnun
✨ Minnkar flækjur í faxi og tagli og auðveldar burstun
✨ Heldur feldinum mjúkum og heilbrigðum
✨ Framleitt innan Evrópusambandsins
Náttúruleg umhirða fyrir hestinn
Equineor er þróað fyrir þá sem vilja veita hestinum bestu mögulegu feldumhirðu með náttúrulegum innihaldsefnum. Þessi einstaka blanda náttúrulegra innihaldsefna hjálpar til við að næra feld, fax og tagl, gefa náttúrulegan glans og auðvelda daglega hestaumhirðu – án sílikons og án fitukenndrar áferðar.
🌿 Arganolía hjálpar til við að næra feldinn og gefa honum náttúrulegan glans.
🌿 Kókosolía og möndluolía mýkja hárin og draga úr þurrki og slitnun.
🌿 Silkiprótein styrkja feld, fax og tagl og gera hárin silkimjúk.
🌿 Lavenderolía gefur mildan og notalegan ilm.
🌿 Sítrónugrasolía hjálpar til við að halda skordýrum frá feldinum og gerir daglega umhirðu enn þægilegri.
Hvernig notar þú Equineor?
Dagleg hestaumhirða
- Hristið flöskuna vel.
- Spreyið jafnt yfir feld, fax og tagl.
- Burstaðu síðan feldinn fyrir fallegan glans.
Eftir þvott
- Spreyið á blautan eða rakan feld.
- Leyfið að þorna.
- Burstaðu síðan feld, fax og tagl fyrir hámarks glans og mýkt.





