Zenroll, róandi roll-on fyrir hesta

6.900 kr. með vsk

Zenroll er náttúruleg ilmblanda sem er borin á nefsvæði hestsins fyrir aðstæður sem geta valdið spennu.
Zenroll er 100% náttúruleg og byggir á ilmblöndu úr lavender, patchouli og vetiver sem eru þekkt innihaldsefni fyrir slökun. Zenroll er einfalt í notkun og hentar vel fyrir daglegar aðstæður þar sem hesturinn þarf að slaka betur á og halda fókus.

Helstu kostir

  • Getur haft skjót róandi áhrif þökk sé einstakri blöndu af ilmkjarnaolíum
  • Áhrif geta varað í allt að klukkutíma – má bera á aftur eftir þörfum
  • Getur hjálpað hestinum að hefja verkefni í rólegu hugarástandi
  • Syfjar ekki og inniheldur ekki efni sem eru á bannlista FEI
  • Hentar vel fyrir þjálfun, flutning, útreiðar, klippingu og járningar
  • Einfalt í notkun – rollað yfir nef hestsins upp og niður

Hvernig á að nota Zenroll

Áður en varan er notuð í fyrsta sinn er mælt með að prófa lítið magn til að kanna hvort hesturinn sé viðkvæmur fyrir einhverju innihaldsefni. Berið Zenroll á í rólegu umhverfi. Rollið upp og niður eftir nefsvæði hestsins 3–5 sinnum og fylgist með viðbrögðum hestsins. Oft má sjá merki um slökun fljótlega eftir notkun, sem bendir til að rétt magn hafi verið notað.
Ef engin viðbrögð sjást má bera aðeins meira á og fylgjast áfram með. Merki um slökun geta verið:

  • tygging, sleikja, blása frá sér, geispa, lygna aftur augum

Ef hesturinn er sérstaklega viðkvæmur má fyrst bera á í stíu og síðan aftur rétt áður en farið er í verkefni, t.d. áður en farið er á bak, í flutning eða út úr hesthúsi. Áhrif geta verið mismunandi eftir hestum.

Fyrirvari

Þar sem varan er 100% náttúruleg geta áhrif verið mismunandi. Sumir hestar þurfa meira magn eða tíðari notkun en aðrir.
Varan kemur ekki í stað góðrar þjálfunar eða dýralæknisþjónustu. Ekki nota ef hesturinn er með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefni. Ekki ætlað til notkunar á hesta með öndunarfærasjúkdóma. Ekki bera á sár.

Við viljum að þú vitir nákvæmlega hvað þú setur á hestinn þinn

Innihaldsefnin eru 100% náttúruleg: ólífuolía, maíssterkja, kókosolía, natríumbíkarbónat, hert ólífuolía, lavender olía, patchouli olía, vetiver olía.
Lavender er ein þekktasta ilmkjarnaolían og rannsóknir benda til að hún geti haft róandi áhrif bæði á menn og hesta.
Lavender gefur frá sér efnið linalool sem hefur áhrif á skynviðtaka í heilanum og getur stuðlað að róandi áhrifum.
Ilmmeðferð hefur verið notuð í hundruð ára.
Menn hafa um 350 lyktarviðtaka en hestar yfir 1000, sem þýðir að ilmmiðaðar aðferðir geta haft áhrif á skynjun þeirra.
Innihaldsefni Zenroll hafa verið rannsökuð fyrir róandi áhrif og varan er 100% náttúruleg.

Algengar spurningar

Hversu mikið á að nota?

Mælt er með að byrja á 3 rollum yfir nefsvæðið og fylgjast með viðbrögðum hestsins. Ef áhrif minnka má bera aftur á.

Hversu lengi vara áhrifin?

Áhrif vara í allt að klukkutíma en geta verið lengri eða styttri eftir hestum. Má bera á aftur eftir þörfum.

Hversu lengi endist eins flaska af Zenroll?

Það fer eftir notkun, en ein flaska endist í 1–2 mánuði.

Er Zenroll leyfilegt í keppni?

Zenroll inniheldur ekki efni sem eru á bannlista FEI eða USEF.

Er lavender bannað?

Engar opinberar reglur FEI eða USEF banna lavender eða ilmkjarnaolíur þegar þær eru notaðar á húð.

Hvað ef varan virkar ekki?

Zenroll byggir á ilmmiðaðri nálgun sem virkar í gegnum lyktarskyn hestsins. Ef áhrif sjást ekki er mælt með að bera aðeins meira á og tryggja að nefsvæðið sé þakið.