Suedwind reiðstígvél brún

39.900 kr. með vsk

Reiðstígvél frá Suedwind sem sameinar fallegt útlit, þægindi og áreiðanleika í einum pakka. Suedwind er hannað fyrir knapa sem vilja geta treyst á búnaðinn sinn allt árið, hvort sem það er í rigningu, kulda eða daglegri notkun í hesthúsinu.
Stígvélin er úr vönduðu, vaxbornu leðri sem hrindir frá sér vatni og heldur fótunum þurrum og hlýjum. Reimarnar að framan tryggir betri aðlögun að fætinum, á meðan rennilás með teygju að aftan gerir það auðvelt að fara í og úr. Reiðstígvélin eru með þriggja laga sóla og veitir góða dempun og stuðning sem gerir skóinn þægilegan í daglegri notkun – bæði í reið og í hesthúsinu.

Af hverju þú munt elska þau:

  • Vatnsheld og áreiðanleg – heldur fótunum þurrum í íslenskum aðstæðum
  • Vaxborið leður – endingargott og fallegt
  • Mjúk og andar vel – Micro-DRY fóður dregur í sig raka og eykur þægindi
  • Passar fyrir mismunandi kálfa – reimar og teygjanlegur rennilás tryggja góða aðlögun
  • YKK® rennilás – traust og endingargóð gæði
  • ORTHOLITE® innlegg – aukin þægindi og dempun fyrir langa daga
  • Þriggja laga sóli – höggdeyfandi gúmmísóli fyrir betra grip og stuðning

Suedwind reiðstígvélin henta jafnt fyrir daglega reiðmennsku sem og snyrtilegt útlit á mótum – fullkomin blanda af praktík og stíl.

Suedwind er þýskt gæðamerki sem er þekkt fyrir reiðskó og stígvél sem sameina fallegt útlit, framúrskarandi þægindi og frábæra endingu fyrir kröfuharða knapa.

Þér gæti einnig líkað við…