STÆRÐARTÖFLUR
Ekki vera í þykkum klæðnaði þegar mælt er.
Þegar valið er á milli stærða er byrjað að miða við lengd á baki, sjá mynd.
Baklengdin þrengir valið niður í tvær stærðir. Þá er farið eftir málum á bringu, mjöðmum o.s.frv.


Price range: 76.000 kr. through 95.000 kr. vsk
🐴 Helite vestin eru hönnuð af frönskum verkfræðingum og eru að fullu framleidd í Frakklandi frá árinu 2001.
🐴 Vestin uppfylla ströngustu öryggiskröfur og eru með CE vottanir frá Evrópusambandinu.
🐴 Vestin eru þau léttustu á markaðinum (890 gr.)
🐴 Vestin blása upp hraðast af öllum vestum (undir 100 millisekúndur)
🐴 Vestin eru með lengstu ábyrgðina á markaðinum en þú færð 4 ára ábyrgð þegar þau eru skráð hjá framleiðanda.
🐴 Vestið ver háls, hryggjaliði, mænu, rifbein, mjóbak og mjaðmagrind. Hálspúðinn skorðar af höfuðið og dregur úr líkum á hálsáverkum
🤠 Á þriðja þúsund íslenskra hestamanna treysta Helite vestunum frá Brokk fyrir öryggi sínu á hestbaki. Verið örugg með okkur!
Vestin eru vatnsheld og teygjanleg, gefa vel eftir en halda lögun sinni eftir að vestið hefur blásið upp. Loftið lekur sjálfkrafa úr vestinu. Vestin henta öllum kynjum og stærðum og koma einnig í barnastærðum. Athugið að börn þurfa að vera 25 kg. eða meira til að mega nota vestin. Skoðið endilega stærðartöfluna hér neðar á síðunni. Vestið er selt tilbúið til notkunar og með því fylgir eitt gashylki, hnakkól, taumur frá vestinu í hnakkól, skiptilykil og handbók.
🍀 Verið velkomin í Brokk búðina í Hlíðarenda 22 í Spretti. Opið þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga milli klukkan 15-17. Þú ert líka velkomin/n á öðrum tímum, hringdu í síma 7801881 / 8611168 og við mælum okkur mót 🙂 Frí heimsending ef verslað er fyrir 15.000 kr.
Ekki vera í þykkum klæðnaði þegar mælt er.
Þegar valið er á milli stærða er byrjað að miða við lengd á baki, sjá mynd.
Baklengdin þrengir valið niður í tvær stærðir. Þá er farið eftir málum á bringu, mjöðmum o.s.frv.


CE VOTTUN: Helite öryggisvestin uppfylla ströngustu öryggiskröfur og eru með CE vottun frá ALIENOR rannsóknarstofunni sem er óháð stofnun á vegum Evrópusambandsins og sérhæfir sig í að rannsaka öryggisbúnað fyrir hestamenn (PPE).
ÁBYRGÐ: Öryggisvestunum fylgir lágmarks tveggja ára ábyrgð.Ef þú skráir vestið innan þriggja mánaða frá kaupum þá eykst ábyrgðin um tvö ár og verður að fjögurra ára ábyrgð. Til að skrá vestið í fjögurra ára ábyrgð smelltu HÉR




